← Til baka í íþróttirnar okkar
SNERPA ÞJÁLFUN
Knattspyrnu Akademía
Æfingar byrja 6. september!
Hjá Snerpu læra ungir iðkendur (6–14 ára) rétta tækni, hreyfigetu og leikskilning - ekki bara boltameðferð, heldur hvernig á að lesa leikinn og taka réttar ákvarðanir.
Hverju má búast við á æfingu?
- Aðeins 18 iðkendur - litlir hópar tryggja að hver iðkandi sést og fær leiðsögn.
- Skipt í tvo 9 manna hópa - nákvæm og markviss þjálfun.
- 100% fókus á tækni, boltameðferð, fótavinnu, fyrstu snertingu og ákvarðanatöku.
- Meðvituð endurtekning - æfingarnar dýpka með hverju skipti þar til iðkandinn nær tökum.
Æfingafjöldi er breytilegur milli mánaða (4–5, í desember 3 vegna jólafrís) en mánaðargjaldið er jafnað út yfir tímabilið.
Þetta hefur verið uppselt hratt síðustu 2 ár - við mælum með að skrá sem fyrst.
STAÐSETNING
Kaplakriki, Dvergurinn (innanhúss)
ÞJÁLFARAR
Nihad Hasecic („Cober“) og Milan Stefan Jankovic („Janko“) - báðir með UEFA A þjálfaragráðu - auk aðstoðarþjálfara
ÆFINGATÍMI
50 mínútur
HVENÆR
6–8 ára: sunnudaga kl. 12:30. 9–11 ára: sunnudaga kl. 13:30. 12–14 ára: laugardaga kl. 12:00. Sjá fullt æfingaprógram að neðan.
UPPBYGGING
Aðeins 18 iðkendur, skipt í tvo 9 manna hópa. Áhersla á grunntækni, hraða og leikskilning í þægilegu umhverfi.
VERÐ
23.900 kr / mán
Systkinaafsláttur 15%.
Veldu aldurshóp
Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er í gegnum Sportabler og byrja aftur síðar - engin binding fyrir allt tímabilið, enginn uppsagnarfrestur.