Handbolta Akademía
Hjá Snerpu Þjálfun leggjum við áherslu á að ungir og efnilegir handboltaiðkendur öðlist þá tækni, hreyfigetu og leikskilning sem þarf til að ná markmiðum sínum.
Komdu og prófaðu frítt!
Komdu á eina æfingu frítt - engin skuldbinding, engin greiðsla. Í boði sunnudaginn 20. september eða sunnudaginn 27. september.
Þetta er ein frí prufuæfing - engin skuldbinding né greiðsla. Þar sem plássið er takmarkað höfum við samband við þig til að staðfesta hvort þú komst að.
Það er ekki nóg að kunna að meðhöndla boltann - leikmaður þarf að skilja leikinn, taka réttar ákvarðanir og sjá næstu leiki fyrir. Á Íslandi finnst okkur skorta markvissa þjálfun í þessum þáttum, svo í okkar tímum einblínum við á snerpu, tækni og leikskilning.
Hjá Snerpu erum við eins og handboltalið - við vinnum saman að því að hjálpa hverjum og einum iðkanda að ná sínum markmiðum. Iðkandinn kemur til okkar með 100% vilja til að verða betri, og við mætum því með sömu einlægni og fókus.
Hverju má búast við á æfingu?
- Aðeins 18 iðkendur - litlir hópar tryggja gæði og athygli, hver iðkandi sést og fær leiðsögn.
- Skipt í tvo 9 manna hópa - nánast einkaþjálfun, nákvæm leiðsögn og markviss endurgjöf.
- 100% fókus á tækni - boltameðferð, fótavinna, skottækni og ákvarðanataka.
- Meðvituð endurtekning - æfingarnar dýpka með hverju skipti þar til iðkandinn nær 100% tökum.
„Að ná tökum kemur ekki með fjölbreytni, heldur með endurtekningu með tilgang.“
Við mælum eindregið með að skrá sem fyrst - aðeins 15 pláss laus!
Áskrift sept. 2026 – maí 2027 · Systkinaafsláttur 15% · æfingafjöldi breytilegur milli mánaða (des. 3 v/jólafrís), gjaldið jafnað út yfir tímabilið.
Veldu aldurshóp
Skráning og greiðsla fer fram á Abler. Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er í gegnum Sportabler og byrja aftur síðar - engin binding fyrir allt tímabilið, enginn uppsagnarfrestur.